Einbýlishús í Hveragerði

Nýlegt hús þýðir ekki endilega fullkomin loftskipti! Í þessu 2 ára gamla einbýlishúsi í Hveragerði settum við upp loftskiptikerfi eftir á, með snyrtilegri lausn þar sem búnaðurinn er að mestu fyrir ofan loft.


Eigendurnir höfðu samband við okkur og vildu fá tilboð í kerfi. Þessi loftskipta samstæða er fest á vegg og er bæði hljóðlát og skilvirk. Allur búnaður, fyrir utan samstæðuna sjálfa, er fyrir ofan loft og getur oft verið krefjandi að koma honum fyrir, en það er leyst á besta máta af okkar frábæru starfsmönnum.


Það eru engin vandamál hjá Fersku Lofti, bara lausnir.