
Við hjá Ferskt Loft sérhæfum okkur í loftskiptikerfum sem bæta loftgæði, draga úr orkunotkun og skapa heilbrigðara inniloft. Við vinnum með bæði heimili og fyrirtæki og leggjum áherslu á lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.
UM Ferskt Loft
ferskt loft alltaf
Ráðgjöf
Við skoðum þitt rými og leggjum til bestu lausnirnar
Hönnun
Sérsniðnar lausnir sem passa þínum þörfum
Uppsetning
Fagleg uppsetning og frágangur
Þjónusta
Regluleg eftirfylgni og viðhald
Af hverju Ferskt Loft?
Reynsla og sérfræðiþekking í loftræstingu
Sjálfbærar lausnir sem draga úr orkunotkun og kosta minna í rekstri
Persónuleg þjónusta sem tekur mið af þínum þörfum
Áreiðanleiki og gæði sem standast íslenskt veðurfar
Afhverju viljum við loftskiptikerfi?
Með hertum byggingarreglugerðum nútímans eru byggingar mun betur einangraðar og þéttari en áður. Þó það sé jákvætt út frá orkusjónarmiði hefur það í för með sér að hús „anda“ síður og losa sig því ekki jafn auðveldlega við raka og óhreint loft og eldri, óþéttari hús gerðu.
Á sama tíma er minna um að gluggar séu opnaðir reglulega, sem dregur enn frekar úr náttúrulegri loftræstingu. Skortur á loftskiptum getur leitt til aukins raka og þar með aukinnar hættu á myglumyndun, sem hefur áhrif á bæði heilsu fólks og ástand bygginga.
Sífellt meiri kröfur eru gerðar um góð loftgæði í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu (Heat Recovery) er skilvirk og orkusparandi lausn til að tryggja stöðug loftskipti án þess að auka hitatap. Með allt að 95% varmaendurvinnslu nýtist hitinn úr útsogsloftinu til að hita ferskt innblástursloft. Þannig má draga úr orkunotkun og lækka rekstrarkostnað hússins.
Loftskiptikerfi tryggir stöðugt innstreymi fersks og síaðs lofts, sem stuðlar að betri loftgæðum, minna ryki og betri svefni.
Kerfið getur einnig framkallað yfirþrýsting í húsnæði, sem er mikilvægt til að koma í veg fyrir að raki sogist inn vegna undirþrýstings. Undirþrýstingur er algengt vandamál, sérstaklega í fjölbýlishúsum þar sem oft er eingöngu útsog í íbúðum. Með sjálfstæðu loftskiptikerfi í hverri íbúð getur hver eining stjórnað sínum loftskiptum án þess að hafa áhrif á aðrar íbúðir.
Í mörgum nágrannalöndum okkar er nú þegar kveðið á um loftskiptikerfi í nýbyggingum samkvæmt byggingarreglugerðum.
Fersktloft.is býður upp á vönduð loftskiptikerfi fyrir fjölbreyttar aðstæður, svo sem einbýlishús, íbúðir, skrifstofuhúsnæði og sumarbústaði. Í sumarbústöðum getur kerfið jafnframt komið í veg fyrir að skordýr, svo sem lúsmý, komist inn, þar sem ferskt loft er síað og gluggum er haldið lokuðum.
Ertu tilbúin(n) að bæta loftgæðin á þínu heimili eða vinnustað?
Ferlið okkar
Við viljum gera það einfalt og þægilegt að bæta loftgæði á þínu heimili eða vinnustað. Svona virkar ferlið:
Hafðu samband – Við ræðum þarfir þínar og gerum frumathugun
Staðbundin greining – Við metum aðstæður á staðnum og leggjum til hentuga lausn.
Uppsetning – Uppsetning og frágangur með reynslumiklu teymi.
Þjónusta og eftirfylgni – Reglulegt viðhald og ráðgjöf til að tryggja langtímaárangur.
Með þessu tryggjum við að þú fáir lausn sem er bæði hagkvæm og skilvirk – og að loftið verði alltaf ferskt.
