Fit agix - Tæknilegar upplýsingar
FITT Agix loftskiptikerfi
Loftskiptikerfi frá FITT Agix eru hljóðlát og skilvirk sem tryggir ferskt loft og betri loftgæði innandyra. Kerfið er einfalt í uppsetningu og hentar vel fyrir heimili og sumarbústaði.
Það endurnýtir allt að 93% af varmanum úr loftinu sem fer út og dregur þannig úr hitatapi. Kerfið hjálpar einnig til við að halda lúsmýi úti án þess að hindra loftskipti.

