
Við hjá Ferskt Loft sérhæfum okkur í loftskiptikerfum sem bæta loftgæði, draga úr orkunotkun og skapa heilbrigðara inniloft. Við vinnum með bæði heimili og fyrirtæki og leggjum áherslu á lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.
UM Ferskt Loft
ferskt loft. alltaf
Ráðgjöf
Við skoðum þitt rými og leggjum til bestu lausnirnar
Hönnun
Sérsniðnar lausnir sem passa þínum þörfum
Uppsetning
Fagleg uppsetning og frágangur
Þjónusta
Regluleg eftirfylgni og viðhald
Af hverju Ferskt Loft?
Reynsla og sérfræðiþekking í loftræstingu
Sjálfbærar lausnir sem draga úr orkunotkun og kosta minna í rekstri
Persónuleg þjónusta sem tekur mið af þínum þörfum
Áreiðanleiki og gæði sem standast íslenskt veðurfar
Afhverju loftskiptikerfi.
Með hertum byggingarreglum nútímans eru byggingar töluvert betur byggð og þar af leiðandi þéttari en hér áður fyrr. Hús fá síður að anda og losa sig þar af leiðandi ekki eins vel við raka og gerðu áður í "óþéttari" húsum.
Einnig er minna um að fólk opni glugga en var áður gert og hús síður að loftræsa sig sjálf sem er ein af aðal ástæðum myndun myglu.
Og sífelld krafa um betri loftgæði í húsum, er loftskiptikerfi ákjósanlegur kostur til þess að loftræsta og endurnýta varma.
Með allt að 95% endurnýtanlegum varma (Heat Recovery) er hægt að draga úr orkunotkun hússins eða íbúðar og draga þar af leiðandi úr orkukostnaði.
Þar sem loftskiptikerfið hitar upp ferska loftið sem er dregið inn í húsið með óhreina loftinu sem er kastað út og hús og íbúðir eru alltaf með ferskt loft.
Sem stuðlar að betri svefni og minna ryki og óhreinindum í loftinu.
Einnig getur loftskiptikerfi boðið upp á að búa til yfirþrýsting í húsi eða íbúð sem er mikilvægt svo að raki sé síður að dragast inn í húsið vegna undirþrýstings.
Undirþrýstingur er oft mikið vandamál í fjölbýlishúsum þar sem oft er aðeins útsog í íbúðum.
Með því að setja upp loftskiptikerfi í hverja íbúð fyrir sig, getur hver íbúð stjórnað sínum aðstæðum sjálfstætt án þess að hafa áhrif á aðrar íbúðir.
Í nágrannalöndum okkar er þegar komið í byggingarreglugerðir að loftskiptikerfi skuli vera í öllum nýjum byggingum.
Fersktloft.is býður upp á gæða loftskiptikerfi fyrir allar aðstæður. Fyrir einbýlishús, íbúðir, skrifstofuhúsnæði og sumarbústaði.
Í sumarbústöðum þar á td lúsmý á ekki leið inn í húsnæði ef gluggar eru lokarðir og loftskiptikerfið er veita fersku og síuðu lofti inn í húsnæðið.
Ertu tilbúin(n) að bæta loftgæðin á þínu heimili eða vinnustað?
Ferlið okkar
Við viljum gera það einfalt og þægilegt að bæta loftgæði á þínu heimili eða vinnustað. Svona virkar ferlið:
Hafðu samband – Við ræðum þarfir þínar og gerum frumathugun
Staðbundin greining – Við metum aðstæður á staðnum og leggjum til hentuga lausn.
Uppsetning – Uppsetning og frágangur með reynslumiklu teymi.
Þjónusta og eftirfylgni – Reglulegt viðhald og ráðgjöf til að tryggja langtímaárangur.
Með þessu tryggjum við að þú fáir lausn sem er bæði hagkvæm og skilvirk – og að loftið verði alltaf ferskt.
